Pálmi Gestsson
Nafn: Pálmi Á. Gestsson
Fæddur: 2. október 1957
Hæð: 186 cm
Þyngd: 100 kg
Hár: Dökkt
Augu: Blá

Meira til: Pálmi Árni Gestsson fæddist í Bolungavík þ. 2.okt. 1957. Sonur hjónana Gests Oddlleifs Kolbeins Pálmasonar og Sigurborgar Sigurgeirsdóttur. Í Bolungavík átti hann öll sín æsku og ungdómsár og undi þar glaður við sitt. Eftir almennt skyldunám hóf hann nám í húsasmíðum og stundaði það nám í 4 ár án þess að ljúka prófi. Áður en til þess kom hóf hann leiklistarnám í Leiklistarskóla Íslands árið 1978. Á sínum æskuárum lagði hann einnig stund á saxofónnám í Tónlistarskóla Bolungavíkur og spilaði með lúðrasveit Bolvíkinga. Hann nam fiðluleik í hálft ár hjá séra Gunnari Björnssyni. Á þessum árum lék hann einnig á bassa í popphljómsveitinni Mímósu, en hún átti sitt blómaskeið á áttunda áratug síðustu aldar.

Eins og áður er getið hóf hann nám í Leiklistarskóla Íslands árið 1978 og lauk námi þaðan 1982. Hans fyrsta hlutverk að námi loknu var Jóland lautinant í Írlandskorti Brian Friel hjá Leikfélagi Reykjavíkur í Iðnó. Fyrsta árið lék hann með L.R ásamt því að starfa með nokkrum frjálsum leikhópum. Árið 1983 var hann fastráðinn við Þjóðleikhúsið og hefur verið það síðan. Hann tók sæti Gylfa Þ. Gíslasonar í Þjóleikhúsráði árið 1988 og sat þar samfleytt í 12 ár eða til ársins 2000 fyrir hönd Alþýðuflokksins.

Eiginkona Pálma er Sigurlaug Halldórsdóttir flugfreyja og eiga þau saman einn son Mími Bjarka, en fyrir átti Pálmi Gest Kolbein trommuleikara f. 1979 og Birnu Hjaltalín nema f.1983. Fósturbörn Pálma eru Márus Brynjar Bjarnason f.1986 og María Birta Bjarnadóttir f.1988. Fjölskyldunni tilheyra einnig Labradorhundurinn Kasper og Bichontíkin Kamilla.

Netfang: palmi@palmi.is
Viðurkenningar
Edduverðlaun (2005)
Hlaut Edduverðlaunin fyrir besta leik í aukahlutverki í áramótaskaupi sjónvarpsins 2004. Höfundar og umsjón: Spaugstofan

Tilnefning til Edduverðlauna (2000)
Var tilnefndur til Edduverðlaunanna fyrir leik í aðalhlutverki í kvikmyndinni Ikingut eftir Gísla Snæ Erlingsson.

Menntun
Leiklistarskóli Íslands (1978-1982)
Lauk námi sem leikari. Hóf störf hjá Leikfélagi Reykjavíkur og var þar í eitt ár, en eftir það réðst ég til Þjóðleikhússins og hef verið fastráðinn þar frá árinu 1984.

Iðnskólinn á Ísafirði (1974-176)
Nám í Húsasmíðum

Áhugamál
Miðstræti 3. Bolungavík. (Móalækur á Ytri -Búðum)
Elsta hús í Bolungavík, byggt 1900. byggt við það 1930

Hestamennska
Hestamennskan tengdist óneitanlega skotveiðunum þar sem ég þurfti nú á einhvern hátt að koma fjallalambinu heim í kot.

Hundar
Það var ekki hægt annað en að vera með góðan fjárhund við sauðaveiðarnar. Hundurinn sá til þess að rollurnar hópuðu sig saman og biðu eftir að ég veitti þeim hinstu blessun.

Gönguferðir
Stundum setti ég eins og tvær aukagimbrar á fákinn og teymdi hann í stað þess að sitja hann alla leið heim. Ég hafði bara gaman af því.

Ljóðalestur
Segir sig sjálft. Það er ekki hægt að tala við helvítis hundinn allan tímann sem maður er að ríða fram og til baka. Hann, greyið, hafði nú reyndar unun af því að hlusta á mig þylja upp úr Svörtum fjöðrum.

Tenglar
Sjónvarp
Spaugstofan Skemmtiþættir á RUV sem hófu göngu sína árið 1989
Leikhús
Þjóðleikhúsið - upplýsingar um sýningar og listamenn
Leikfélag Akureyrar - upplýsingar um sýningar og listamenn
Borgarleikhúsið - upplýsingar um sýningar og listamenn
Áhugamál
Hlað - vefur um skotveiði