15. ágúst 2004, 13:08
Skrefi nær himnaríki!
Þann 10 ágúst sl. lögðum við feðgar ég og Gestur sonur minn uppí hreindýraveiðiferð austur á land. Við ókum sem leið lá norður í land og austur í Vaðbrekku í Hrafnkelsdal þar sem Sigurður Aðalsteinsson hreindýraeftirlitsmaður býr.

þessi ökuferð austur sem tók uþb 8 klst er kannski merkilegust fyrir það að þennan dag voru nokkur hitamet slegin á landinu. Td áðum við á Mývatni en þar var 32 stiga hiti skv okkar mælingum!!!

Þann 11 ágúst fórum við á Fljótsdalsheiðina og felldum tarf, og daginn eftir ókum við heim suðurleiðina í ekki minni hita!! Sú ferð tók uþb 9 klst.

Fyrir veiðimenn eru hér nokkrar tæknilegar upplýsingar: Tarfur 80 kg skotin úr ca 400 dýra hjörð við þórisstaðakvísl austan Eyvindarfjalla. Sá ekki stærri tarf í hjörðinni. Færi: 250 m. skothylki 7 mm Remington magnum, hleðsla 161,5 kúla accubound 140 grein. Hlaðið af Hávari Sigurjónssyni.


Nokkrar ádrepur: lagt uppfrá Vaðbrekku kl. 9. ekið fram Hrafnkelsdalinn uppá Fljótsdalsheiði upp með Hölkná. Fórum þvert yfir heiðinna og svo sem leið lá norðaustur heiðina, niður Svörtöldu og stoppuðum til að skyggnast um við Svörtukróka. Þar sáum við einn kálf sem trúlega hefur verið undan kú sem felld var daginn áður. Fórum niður að Koföldu og sáum þá hjörðina á Tungu við Þórisstaðakvísl. Þá hefur kl verið um 10:30. uþb 5 klst eftir að upp var lagt var Tarfurinn felldur eða um kl 15:15. eins og áður sagði var hjörðin mjög stór og þétt þannig að töluvert maus var að komast í færi og ná tarfinum fríum. Það voru bara 4-5 stórir tarfar í hjörðinni og héldu þeir sig alltaf inní miðri hjörð í skjóli við kýr og kálfa eða þá að öll hjörðin var í milli þeirra og okkar.

En öllu lauk þessu með glæsibrag og var í einu orði sagt einhver frábærasta reynsla sem ég hef orðið fyrir á minni æfi, og hjálpaðist þá allt að: besta veður í manna minnum, heiðskýrt og sól og um 30 stiga hiti, fegurð landsins sem er einstök og fjölbreytt og yndislegt dýralíf. Ekki má gleyma eftirlitsmanninum Sigurði Aðalsteinssyni sem á engan sinn líka.

Eftir að dýrið hafði verið fellt, lögðum við kerrunni með dýrinu og fórum að skoða Kárahnjúkavirkjun og allt bröltið þar í kring í fádæma fróðlegri leiðsögn Sigurðar. Á niðurleiðinni tókum við kerruna með og vorum komnir sælir og glaðir í Vaðbrekku um kl 20:00 og þá var gert að dýrinu það fláð og skorið...og öllu lokið kl 22:00.

Þetta var í einu orði sagt algjör B0BA!!!

Nákvæmari tæknilegar upplýsingar:

Riffill: Steyr Mannlicher Safe bolt
Cal: 7 mm Rem Magn
Rate of Twist: 1 : 9
Kúla: Nosler Accubond
Þyngd: 140 grain
Púður: Vihtavuori N- 160
Hleðsla: 61.5 gr
Primer: Federal Large Magnum
Hylki: Norma
COL: 2.195 (COL = Complete overall Length) Hylki + kúla
Hraði: 2998 fps ( á kúlunni útúr hlaupi)
Sjónauki: Zeiss Diavari Z* 3-12
Núllstillling: . 200 m
PBR: 80 - 320 m (Point Blank Range +3" -3")