30. apríl 2008, 00:40
Bolungavík blæðir!
Ég er Bolvíkingur. Þótt ég sé búsettur í Reykjavík er ég Bolvíkingur og get aldrei orðið neitt annað. Vil ekki verða neitt annað. Ekki ósvipað og Íslendingar búsettir í útlöndum eru alltaf Íslendingar.
Ég er fæddur og uppalinn Bolvíkingur og stór hluti fjölskyldu minnar og ættboga býr þar og hefur gert frá aldaöðli. Bolungavík á þess vegna stóran sess í hjarta mínu. Hagur Bolungavíkur og velferð Bolvíkinga skiptir mig miklu máli, er reyndar mitt hjartans mál. Mér finnst ég standa í skuld við Bolungavík fyrir uppeldið. Ég hef reynt að sýna þakklæti mitt af veikum mætti með því að taka elsta húsið þar í fóstur, húsið sem ég fæddist í og leggja mitt af mörkum til að fegra ásýnd æskustöðvanna.[...]
Meira
21. nóvember 2006, 00:51
Hvort erum við dauðir!
Ó nei slíkt væri stórlega ýkt...en rólegir höfum við verið og verðum um sinn
31. janúar 2005, 01:08
Gleðilegt ár! (amk)
Það er komið langt síðan maður skrifaði hér nokkurn hlut. Eins og ég hef sagt áður er það kannski eðlilegt, amk skiljanlegt að maður skuli ekki vera þenja sig í rituðu máli þar sem maður hefur heilan sjónvarpsþátt til að tjá sig. En allt um það. Maður hefði nú samt sem áður átt að geta óskað þeim sem rekast á þetta ( sem eru kannski ekki margir núorðið) árs og friðar! Það skal gert hér með. Ég mun áfram skrifa á þessa síðu svona þegar ég man eftir og mér þykir ástæða til.
6. október 2004, 03:33
Spaugstofan opnar heimasíðu!
loksins kom að því að Spaugstofan opnaði heimasíðu. Bæði á að vera hægt að nálgast hana í gegnum ruv.is (eins og hérað ofan) og líka einfaldlega á: spaugstofan.is
Ég hvet fólk endilega til að kynna sér síðunna sem hefur uppá ýmislegt skemmtilegt að bjóða.
15. ágúst 2004, 13:08
Skrefi nær himnaríki!
Þann 10 ágúst sl. lögðum við feðgar ég og Gestur sonur minn uppí hreindýraveiðiferð austur á land. Við ókum sem leið lá norður í land og austur í Vaðbrekku í Hrafnkelsdal þar sem Sigurður Aðalsteinsson hreindýraeftirlitsmaður býr.

þessi ökuferð austur sem tók uþb 8 klst er kannski merkilegust fyrir það að þennan dag voru nokkur hitamet slegin á landinu. Td áðum við á Mývatni en þar var 32 stiga hiti skv okkar mælingum!!!

Þann 11 ágúst fórum við á Fljótsdalsheiðina og felldum tarf, og daginn eftir ókum við heim suðurleiðina í ekki minni hita!! Sú ferð tók uþb 9 klst.

Fyrir veiðimenn eru hér nokkrar tæknilegar upplýsingar: Tarfur 80 kg skotin úr ca 400 dýra hjörð við þórisstaðakví[...]
Meira